Aftur á skólabekk

September 2nd, 2008

Jæja þá er fyrsti skóladagurinn minn í Mannauðsstjórnun lokið. Fór í tvö fög í dag, Stjórnun og forysta og Samskipti á vinnumarkaði og líst mér bara vel á. Það verður náttúrulega nóg að gera en ég bjóst ekki við öðru. Ég ákvað að skella mér á fullt nám þrátt fyrir að vera bara með dagmömmu […]

Ritgerðarsmíð

December 12th, 2006

Lítið verið um blogg undanfarið enda er ég á kafi í “prófum” sem ég þarf að sinna. Með gæsalöppunum á ég við að ég fer í rauninni ekki í neitt próf en þarf að skila verkefnum í staðin. Sit núna upp á Þjóðarbókhlöðu og skrifa og skrifa. Samtals er ég búin að skrifa um 2 […]

Seinasta kennsluvikan og svo próf

November 29th, 2006

Vá hvað þessi önn er búin að fljúga. Allt í einu er seinasta kennsluvikan byrjuð og svo byrja prófin af krafti. Fer reyndar ekki í neitt próf en þarf að skila 2 verkefnum svo ég er ekki alveg sloppin. Annars er ég orðin frekar spennt fyrir jólunum. Hlakka til að skreyta og baka og kaupa […]

Kvef, bækur, leikhús og umferðarbrjótar

November 14th, 2006

Hvers vegna er ekki hægt að finna upp varanlega lækningu við kvefi? Þetta er svo hundleiðilegur sjúkdómur að maður hefði haldið að hann fengi smá forgang hjá læknastéttinni? Ég er s.s. komin með kvef AFTUR. Ekki nema rétt rúmur mánuður síðan ég steig upp úr hroðalegri kvefpest sem hélt mér hóstandi og horandi í 3 […]

Hvað er póstmódernismi?

September 26th, 2006

Ég var búin að skrifa langa og merkilega blogg færslu um það hvað póstmódernismi væri… eða réttara, hvað væri rifist um að hann væri en svo áttaði ég mig á að enginn mundi nenna að lesa hana svo ég ýtti bara á delete. Alveg væri ég til í að geta gert það við fleiri hugtök… […]

September 5th, 2006

Ég þarf að lesa 5 bækur + greinar fyrir fimmtudag.
Fresta afmælinu mínu fram í næstu viku.

Aftur á skólabekk

September 5th, 2006

Það er alltaf sérstök stemming fyrsta skóladaginn á hverri önn. Jafnvel þótt maður sé búinn að eiga þá nokkra eftir margra ára háskólanám. Smá spenntur, villtur og óviss ráfandi um skólalóðina að leita að næsta tíma standi á uppdrög nr 16 af stundaskrá, vonandi að maður sér örugglega með allar nýjustu upplýsingarnar. 
Þetta er frábær tilfinning […]

… og þá hefst skólinn enn á ný

September 3rd, 2006

September hefur alltaf verið uppáhaldsmánuðurinn minn. Haustið að byrja, skólinn að byrja og svo á ég afmæli. Verð 26 ára á miðvikudaginn. Ég byrja í M.A. náminu á þriðjudag og verð að vinna með skólanum í vetur hjá Fasteignamatinu. Á fimmtudag fer ég svo austur í jarðaför langömmu minnar. Ég og pabbi ætlum að keyra […]

Útskrift

June 21st, 2006

Sæl öll sömul,
Ég veit að ég er alveg hroðalega lélegur bloggari en ég er búin að ákveða að leyfa mér það í sumar. Hef alltof mikið að gera í vinnunni til að blogga þar og þegar ég kem heim þá er annað hvort alltof mikið að gera eða ég er svo dauðþreytt að það eina […]

B.A. ritgerð

May 29th, 2006

Jæja þá er maður búinn að fá úr B.A. ritgerðinni. Fékk 8 sem er nákvæmlega það sem ég bjóst við að fá. Held allir sem standa sig vel og fara alveg eftir því sem leiðbeinandinn þeirra segi fái 8, aðrir 5, 6 eða 7. Held það sé MJÖG sjaldgæft að fólk fái hærra.
Annars þá var […]