Ég er ennþá á lífi
October 14th, 2008… en bara naumlega.
Ég skammast mín endalaust þegar ég kveiki á explorernum og hann opnast á heimasíðunni minni og sé að síðasta færsla er orðin rúmlega mánaðargömul. Eftir að ég flutti Þorvald á eigin síðu þá hef ég haft voða lítinn hvata að blogga hérna.
Seinasta mánuðinn hef ég verið á kafi í skólanum. Hann er ca hálfnaður og eins og allir núverandi eða fyrrverandi háskólanemar vita þá er þetta sérstakur álagstími. Ég hef því verið ansi niðursökkin í ritgerðir og greinar og lítill tími til neins annars. Þetta gengur hins vegar bærilega og ég þrauka ennþá í þessum fimm áföngum sem ég byrjaði í.
Þorvaldur Hrafn er byrjaður á Leikskóla. Jáhá ég kom honum inn á leikskóla takk fyrir. Hann er á Leikgarði sem er á vegum Félagsstofnun stúdenta og er leikskóli fyrir krakka frá 6 mánaða til 2 ára. Aðlögunin gengur fínt og er hann kominn í fulla vistun á morgun. Litla barnið mitt. Við erum því samferða á morgnana og svo sæki ég hann klukkan fjögur og við keyrum saman heim. Þetta er ágætis akstur svo þá daga sem ég er ekki í tíma (mánudaga og föstudaga) ætla ég að vera upp í skóla að lesa. Svona til að spara bensín (sjáum hvað ég held það úti lengi).
No comments yet.
Comments RSS TrackBack Identifier URI
Leave a comment