Aftur á skólabekk

September 2nd, 2008


Jæja þá er fyrsti skóladagurinn minn í Mannauðsstjórnun lokið. Fór í tvö fög í dag, Stjórnun og forysta og Samskipti á vinnumarkaði og líst mér bara vel á. Það verður náttúrulega nóg að gera en ég bjóst ekki við öðru. Ég ákvað að skella mér á fullt nám þrátt fyrir að vera bara með dagmömmu til 2 á daginn og svo verður bara að koma í ljós hvort það gengur eða ekki.
Mikið rosalega er annars skrítið að vera komin aftur á skólabekk. Það eru tæp 2 ár síðan ég var seinast í skóla en mér finnst það vera mun lengri tími. Nánast í öðru lífi. Skólasvæðið er líka orðið rosa flott og er ég í tímum á Háskólatorgi. Rosa flottar stofur en stólarnir mættu vera aðeins þægilegri. Innstungur við hvert sæti og nettenging hvert sem maður fer. Þetta er eitthvað annað en þegar ég, Ingibjörg og Guðrún Dröfn vorum að vesenast með fartölvurnar okkar í Árnagarði og Aðalbyggingu þar sem kannski voru þrjár rafmagnsinnstungur í allri stofunni og einhver okkar þurfti að mæta extra snemma til að ná sætum við hana. Svo vorum við alltaf með millistykki sem tók hálfa töskuna. Það voru síðan bara örfáar stofur í umræddum byggingum þar sem Internetssamband var og vorum við löngu búnar að finna út hvar það var sterkast og hvar veikast. Vá hvað mér finnst ég vera gömul þegar ég hugsa svo langt aftur.



  1. Comment by on September 2, 2008 10:11 pm

    Svo máttu líka benda á hvað er fín grafík utaná Háskólatorginu núna (þessi röndótta marglitaða) sem ónefndur undirritaður gerði.

  2. Comment by Halldóra on September 3, 2008 3:05 pm

    núnú, ég tók bara ekki eftir henni… best að fara að skoða…

  3. Comment by JÖRN on September 4, 2008 7:56 pm

    Já, það er þvílíkur munur á aðstöðu. MJÖG svo sammála þér með stólanna, þvílíkur viðbjóður, miðað við hvað flest annað er orðið flott og fínt.
    Ég var líka að byrja, byrjaði á mánudaginn, soldið spes að vera kominn í nám sem er svona… tja… svona fullorðins! hehehe

    Gangi þér vel áfram, við mössum þetta!!!

Comments RSS TrackBack Identifier URI

Leave a comment