Sárt, sárt, grát, grát

January 30th, 2007

Það var afskaplega sorglegt að horfa á seinustu sekúndur leiksins gegn Dönum. Að Danir skyldu skora á seinustu sekúndu er lýginni líkast og ég hreinlega hélt að svona lagað gæti ekki komið fyrir neinn… nema kannski Íslendinga. En það gerðist og eftir hreint ótrúlegan leik vorum við sigruð. Tárin eru ekki langt undan og get […]

20 vikna sónar

January 25th, 2007

Jæja þá fór litla fjölskyldan í bumbuskoðun í dag og fengum að sjá litla krílið. Barnið reyndist vera fullkomið (áttum nú ekki von á öðru) og var ljósan rosa glöð með allt sem hún sá. Meðgöngulengd var staðfest og er áætlaður fæðingardagur því óbreyttur, 12. júní. Læt fylgja með sónarmynd þar sem andlitið sést […]

Stækka og stækka

January 22nd, 2007

Jæja góðir hálsar,
Ég og litla barnið stækkum og stækkum þessa dagana og er kúlan orðin alveg svaka stór og eru það ófáar bumbumyndirnar sem hafa verið teknar. Heimasíðan er líka í stöðugri vinnslu og verður opnuð eftir nokkrar vikur ef allt gengur vel. Við erum að fara í 20 vikna sónar í þessari viku og […]

Orðatækifærin!!!

January 17th, 2007

Það er ekki hundur í hettunni -(…það er ekki hundrað í hættunni…)
Það er ljóst hver ríður rækjum hér -(…það er ljóst hver ræður ríkjum hér.)
Þetta er ekki upp í kött á nesi -(…ekki upp í nös á ketti)
Mér er nú ekkert að landbúnaði…
Allt fór afsíðis sem gat farið afsíðis…
Þessi peysa er mjög lauslát…
Þau eiga þvílíka […]

Nýtt ár og nýr einstaklingur

January 10th, 2007

Jæja þá er árið 2007 runnið í garð og virðist það hreinlega ætla að fljúga áfram. Þessi “önn” byrjar nú öðruvísi að því leyti að í stað þess að setjast aftur á skólabekk þá er ég nú sest á vinnubekk. Vinnubekkurinn er sá sami og ég sat á í hlutastarfi fyrir jól hjá Fasteignamati ríkisins. […]