Vefsíðumyndaforrit

September 28th, 2006

Ég er að vesenast með bestu leiðina til að koma myndunum út á netið. Ég er búin að prófa nokkur forrit en ekki ennþá fundið neitt nógu gott og því auglýsi ég hér með eftir uppástundum.
Hvað góðir lesendur með heimasíður, notið þið?
Uppástungur vel þegnar.

Hvað er póstmódernismi?

September 26th, 2006

Ég var búin að skrifa langa og merkilega blogg færslu um það hvað póstmódernismi væri… eða réttara, hvað væri rifist um að hann væri en svo áttaði ég mig á að enginn mundi nenna að lesa hana svo ég ýtti bara á delete. Alveg væri ég til í að geta gert það við fleiri hugtök… […]

Another day in paradise

September 23rd, 2006

Laugardagar eru yndislegir dagar. Fyrst sefur maður út, svo kúrir maður og loksins þegar svengdin er orðin óbærileg þá skríður maður á lappir og fær sér dísætan morgunverð. Í dag er það Lucky Charmes og svo rjúkandi góður kaffibolli í eftirrétt. Oh hvað ég elska laugardaga.
Annars er planið að klára Hobbitann í dag og […]

Það jafnast ekkert á við góðan kaffibolla til að byrja daginn

September 19th, 2006

Hingað til hafa þriðjudagar verið slæmir í skólanum því á þriðjudögum hef ég alltaf mætt of seint og ekki fengið morgunkaffibollann minn fyrir en um níu leitið sem er alveg hroðalegt. Ástæðan fyrir að ég mæti alltaf of seint er vegna þess að tíminn byrjar 8:20 og þá er geðveik umferð úti og ég þarf […]

Must stay awake…

September 14th, 2006

Mikið ofboðslega erfitt getur stundum verið að halda sér vakandi. Sérstaklega þegar maður þarf að lesa langan og leiðilegan texta af alls kyns “athyglisverðum” umræðum um tungumál og orðræðu og svoleiðis gotterí. Er að fara í umræðutíma klukkan 3 og ég á í mestu erfiðleikum með að halda augunum opnum. Missti af tímanum seinasta fimmtudag […]

Kvef og pína

September 12th, 2006

Jæja það er greinilegt að ég missti alla lesendur með bloggleysi í sumar. Oh well þeir hljóta að villast hingað aftur. Ferðalagið austur gekk bara vel. Við lögðum af stað seint á fimmtudag og keyrðum í einum rykk austur á Neskaupstað. Þetta var nú soldið langt ferðalag enda 9 tíma akstur og meiri hluti hans […]

Ég á svo bágt

September 7th, 2006

Jæja þá er maður orðinn 26 ára. Hroðalegt verð ég að segja. Hvað varð um æskuárin ég bara spyr?
Það er nú samt eitt sem heldur mér ungri, mér reyndar til mikilla ama, og það er eyrnarbólgan sem ég er komin með, eins og litlu börnin. Fór til læknis í seinustu viku sem skrifaði upp á […]

September 5th, 2006

Ég þarf að lesa 5 bækur + greinar fyrir fimmtudag.
Fresta afmælinu mínu fram í næstu viku.

Aftur á skólabekk

September 5th, 2006

Það er alltaf sérstök stemming fyrsta skóladaginn á hverri önn. Jafnvel þótt maður sé búinn að eiga þá nokkra eftir margra ára háskólanám. Smá spenntur, villtur og óviss ráfandi um skólalóðina að leita að næsta tíma standi á uppdrög nr 16 af stundaskrá, vonandi að maður sér örugglega með allar nýjustu upplýsingarnar. 
Þetta er frábær tilfinning […]

… og þá hefst skólinn enn á ný

September 3rd, 2006

September hefur alltaf verið uppáhaldsmánuðurinn minn. Haustið að byrja, skólinn að byrja og svo á ég afmæli. Verð 26 ára á miðvikudaginn. Ég byrja í M.A. náminu á þriðjudag og verð að vinna með skólanum í vetur hjá Fasteignamatinu. Á fimmtudag fer ég svo austur í jarðaför langömmu minnar. Ég og pabbi ætlum að keyra […]