Nýklippt

January 31st, 2006

Þið ágætu lesendur (ef einhver er að lesa þetta) gætuð verið búin að spyrja ykkur hvers vegna þetta blogg sé alveg að drepast. Svar… ég nenni ekki að blogga ef ég fæ engin viðbrögð. Ég er bara mannleg og því er það gjörsamlega niðurdrepandi að blogga dag eftir dag og enginn virðist taka eftir því. […]

Allt að gerast

January 23rd, 2006

Jæja þá er enn ein vinnuvikan byrjuð og kominn tími til að segja fréttir.
Húsnæðismálin ganga vel. Við fengum byggingameistara og matsmann til að fara yfir íbúðina með stækkunargleri og kom hún mjög vel út úr þeirri skoðun. Við erum búin að fá lánið samþykkt og bíðum núna eftir því að það verði klárað. Það kom […]

Fréttir

January 18th, 2006

Nóg hefur sko verið að gera hjá okkur Kára seinustu daga. Eins og áður var sagt þá gerðum við fullt af tilboðum fyrir helgi og er það að frétta að á mánudag fengum við gagntilboð sem við tókum. Það má því segja að við séum búin að kaupa þótt ekki sé búið að skrifa undir […]

Íbúðarmál

January 14th, 2006

Góðan og blessaðan daginn.
Miki hefur nú gengið á undanfarna viku og sérstaklega seinustu daga. Af íbúðarmálum er það að frétta að við erum búin að bjóða í eina sem var hafnað strax, í aðra sem var komið í hálfgert hanaat svo við hættum og svo buðum við í eina í gær og stendur það boð […]

X men 3

January 13th, 2006

Hey það er kominn trailer fyrir næstu X-men mynd. Er búin að bíða (og bíð enn) spennt eftir að sjá hana. Von á henni í maí. Sjáið trailer hérna.

Íbúðarbrask heldur áfram

January 11th, 2006

Jæja þá er loksins tími til að setjast niður í stutta stund og ræða aðeins um íbúðamálin. Erum búin að vera mjög dugleg að skoða seinustu daga. Eins og seinasta blogg sagði þá skoðuðum við 2 íbúðir fyrsta daginn og svo tókum við 4 í gær og 5 í dag. Eitthvað er af maybe og […]

Guð minn almáttugu hvað ég er ógeðslega viðbjóðslega þreytt

January 10th, 2006

Jæja þá er blessaður skólinn byrjaður aftur. Sit núna í mínum fyrstu frímínútum og nota því tímann til að blogga. Hvað annað á maður að gera í þeim þegar maður getur ekki skilið elskuna sína eftir eina og yfirgefna í kennslustofunni?
Við Kári erum byrjuð á fullt í fasteignaskoðunum. Skoðuðum tvær íbúðir í gær, önnur var […]

Ég þyki latur bloggari

January 8th, 2006

Hörður var að kvarta yfir því að ég sé löt að blogga. Hef nú borið sömu sakir upp á hann a.m.k. einu sinni og því ákvað ég að skella inn nokkrum línum til að vera duglegri. Vorum að koma úr mat frá foreldrum hans Kára. Atli og Heiða og þeirra krakkar voru líka en þetta […]

latur bloggari

January 4th, 2006

Gleðilegt nýtt ár öll sömul.
Ég veit að ég er búin að vera hroðalega löt í blogginu seinustu daga en ég hef bara ekki haft neitt sérstakt að segja. Áramótin voru æðisleg. Við borðuðum góðan mat hjá Önnu og Herði, skutum upp sprengjum, spiluðum og spjölluðum. Mjög fínt. Þynnka var í lágmarki á nýársdag, náði […]