Humarsósa

December 31st, 2005

Þessi uppskrift er frá mömmu og verður með forréttinum okkar í kvöld. Ákvað að skella henniá bloggið mitt ef uppskriftin skyldi týnast í kvöld. Mæli eindregið með henni.
HUMARSÓSA
4 væn hvítlauskrif
1 msk. Smjör
1 ½ tsk. Aromat krydd
Safi úr ½ sítrónu
1 kvistur estragon (fáfnisgras)
2 ½ dl. Rjómi
Smjörið brætt í potti – saxið hvítlaukinn smátt og setjið í […]

Nýji uppáhaldsvinur minn er hitapoki

December 31st, 2005

Jæja þá er gamlársdagur kominn og þótt ég sé nú skárri í bakinu heldur en ég var í gær þá er ég ekki orðin nógu góð. Fór í apótek í gær og keypti mér loðinn hitapoka, íbúfen og eitthvað krem sem á að minnka bólgur og eitthvað sniðugt. Var svo í strangri meðferð í gærkvöldi […]

Kvalin

December 30th, 2005

Vá hvað ég og bakið á mér erum ekki vinir í dag. Fór að finna smá til í því í gær, var orðin frekar fúl í gærkvöldi, svaf ílla í nótt og er að hreinlega drepast núna. Get ekki almennilega snúið mér svo nú þarf ég að treysta algjörlega á speglana þegar ég er að […]

Gleðileg jól

December 24th, 2005

Vildi bara óska öllum gleðilegra jóla.

Ásta og Hörður

December 19th, 2005

Ásta:
1. Sú eina sem ég þekki sem var nógu hugrökk að flytja til útlanda eftir framhaldsskóla. Þótt ég hafi ekki þekkt þig neitt rosalega vel áður en þú fórst út þá héldum við ennþá sambandi sem mér finnst frábært því ég drullu sakna þín oft. Sérstaklega þegar glatt er á hjalla þá er alltof augljóst […]

Allir taka þátt

December 18th, 2005

Settu nafnið þitt í kommentið mitt og ég skal svara þessum spurningum um þig. Ef þú setur nafnið þitt og tekur þátt, verður þú að setja þetta á bloggið þitt!

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir […]

Jólafrí… jibbý

December 17th, 2005

Jæja þá er ég búin að fara í mitt eina próf og er því formlega komin í jólafrí (fyrir utan það að ég þarf að fara að byrja á BA ritgerðinni minni) húrra!! Prófið gekk nú ekki alveg eins vel og ég hafði verið að vonast eftir. Klikkaði alveg á 20% spurningu sem kom alveg […]

Mér leiðast próf

December 15th, 2005

Jæja sit hérna í prófalestri. Flestir eru búnir í prófum og farnir að undirbúa jólin en ég þarf að þjást til 12:00 á Laugardag. Hvers vegna má ég aldrei vera búin snemma í prófum??? Eitt próf og það þarf endilega að vera 17. desember! Ég hefði getað tekið þetta helvítis próf fyrir tveimur vikum og […]

“Ný kynslóð vélmenna ber fram te og skokkar helmingi hraðar en áður”

December 13th, 2005

Hversu löt erum við eiginlega orðin??? Ekki nóg með að við þurfum vélmenni til að færa okkur te og aðrar nauðsynjar heldur eru komin á markaðinn vélmenni sem skokka fyrir mann?!?!??! Ástandið er orðið eins og í hinni verstu vísindaskáldsögu. Vélmennin taka yfir og við verðum alltaf löt til að gera nokkuð í því… ef […]

Ný heimasíða

December 10th, 2005

Maður er svo duglegur þegar maður á að vera í prófum. Henti út gömlu heimasíðunni minni og skellti inn nýrri. Hannaði hana alveg frá grunni og var bara snögg að því. Ekkert flókin en það er það sem mér finnst flottast þessa dagana. Einfalt.
Skoðið.
Ég setti líka upp eintak af Töfraraunsæissíðunni minni á lénið hérna og […]