Harry Potter and the goblet of fire

September 29th, 2005

Vá hvað mig hlakkar til að sjá næstu Harry Potter mynd. Hún er væntanleg í kvikmyndahús 18. nóvember næstkomandi og verð ég án efa með þeimfyrstu sem fer að sjá þessa mynd. Ég ætla samt ekki að brenna mig á því sama og þegar ég fór á seinustu mynd en þá fór ég á símaforsýningu […]

Mikið að gera

September 28th, 2005

Ég veit að ég hef verið löt við að blogga undanfarið, samt ekki í samanburði við flesta sem telja það nóg að blogga einu sinni í viku. Ég er búin að vera á fullu við að búa til heimasíðu og svo er orðið ansi mikið að gera í skólanum. Lífið og líkamsrætin hafa líka verið […]

Spam

September 26th, 2005

Vá hvað ég er þreytt eftir World Class í dag. Hljóp 5 km á fullu á hálftíma rúmum og hljóp svo upp 85 hæðir í tröppunum. Ef ég held svona áfram ætti ég að ná að komast í jólafötin.
Í dag er einhver gaur/gaurar búnir að vera að “spama” bloggið mitt á fullu. Ég er með […]

Skæl skæl

September 25th, 2005

Hvert fór eiginlega góða veðrið?

Kalt!!!!!!!!

September 22nd, 2005

Vá hvað veturinn nálgast hratt. Þegar við komum út í bíl í morgun sást ekkert út um rúðurnar fyrir fyrir frosinni móðu eða hvað á að kalla það og við uppgötuðum okkur til mikils ama að við áttum eftir að kaupa rúðusköfu fyrir nýja bílinn. Ég var með tusku í bílnum sem við náðum að […]

Klukkuð!

September 20th, 2005

Ekki er öll vitleysan eins. Hörður var að klukka mig sem þýðir að ég þarf að segja 5 lítt þekktar staðreyndir um sjálfa mig. Ég er nú ekki vön því að taka þátt í svona vitleysu en læt tilleiðast í þetta sinn.
1. Rauða spjaldið
Þegar ég var unglingur tók ég upp á því að […]

Preston Michael Spears Federline

September 19th, 2005

Finnst engum öðrum þetta ömurlega hallærislegt nafn?
Í fyrsta lagi… why oh why þurfa mömmurnar alltaf að vera að troða sínu ættarnafni með??? Ekki sjáum við börn á Íslandi sem heita Sigrún Margrétardóttir Sigurðardóttir. Margra ára hefð segir til um það að börn eiga að bera ættarnafn föður síns og hvers vegna mega þau það þá […]

Laugardagur

September 17th, 2005

Braut 1 glas í gær. Veit ekki hvað er í gangi. Er að hugsa um að breyta nafninu á blogginu yfir í Hugleiðingar hrakfallabálks.

Hrakfallasagan heldur áfram

September 16th, 2005

Jæja þá er ég komin í tíma á þessum ágæta föstudagsmorgni. Við Ingibjörg fórum á okkar fyrsta bjórkvöld á Dillon í gær og það var bara geðveikt gaman. Við vorum ekki að þekkja neinn þarna en hlömmuðum okkur bara niður í miðjum hópnum og blöðruðum og blöðruðum og núna eigum við fullt af nýjum vinum […]

Fimmtudagur

September 15th, 2005

Jæja þá er ég komin úr rætinni, þreytt en mjög sæl. Er að fara í tíma klukkan eitt og ætla að slappa af þangað til. Við Ingibjörg erum að fara á bjórkvöld hjá bókmenntafræðinni á Dillon í kvöld. Þetta verður fyrsta bjórkvöldið sem við mætum á hjá deildinni okkar og samt erum við þriðja árs […]