Komin heim

August 30th, 2005

Jæja þá er maður kominn heim aftur eftir hörku verslunarferð í Glasgow borginni. Ferðin hefur þó ekki gengið áfallalaust fyrir sig þar sem ég tók mig til og varð veik á laugardaginn. Hálsbólga og kvef sem náði svo hámarki í vélinni á leiðinni heim þegar ég fékk þessa rosa hellur fyrir eyrun að ég er […]

Brottför til Glasgow 7:20

August 24th, 2005

Jæja þá er farið að styttast í langþráða ferð til Glasgow. Taskan orðin hálffull og spenningurinn í hámarki. Ég hef nú mestar áhyggjur af farangrinum í augnablikinu því ég ætlaði bara að taka það “allra nauðsynlegasta” með mér og og kaupa svo restina, en það allra nauðsynlegasta tekur miklu meira pláss heldur en ég gerði […]

Halldóra að fikta

August 23rd, 2005

Var víst eitthvað að fikta og lokaði á allar athugasemdir. Vonandi er þetta komið í lag núna.

Linkar

August 23rd, 2005

Að ráði Reynis var ég að breyta linkunum úr ljós bláum (og einhver skær grænn) yfir í þennan dökk bláa lit. Betra svona?

Strætó í Glasgow

August 22nd, 2005

Ég er búin að eyða morgninum (eða síðan ég vaknaði um 11) við að reyna að finna út hvernig við Jóna Björg eigum að komast af flugvellinum yfir á hótelið. Leigubíll kemur eiginlega ekki til greina því flugvöllurinn er rétt fyrir utan borgina og því frekar langt og þ.a.l. dýr að ferðast svo glæsilega. Auk […]

Útlanda!!!!

August 21st, 2005

Ég fer til Glasgow eftir 4 daga!!!!!! Ekkert smá stutt þangað til. Við Jóna Björg vinkona verðum í 5 daga og ætlum að versla fullt af fötum. Ég hlakka svo til

Voða gaman

August 21st, 2005

Ég er að skemma mér konunglega við þetta nýja hobbý mitt. Ég er reyndar með smá samviskubit yfir öllum tímanum sem ég er að eyða í þetta en þar sem ég hef í rauninni ekkert betra við klukkustundirnar að gera þá ætla ég bara að halda áfram. Ég var að bæta við teljara neðst á […]

Heimasíðan fædd

August 20th, 2005

Vá hvað ég er búin að vera dugleg. Heimasíðan mín er komin á netið og er það hörku afrek því ég ætlaði ekki að leggja í hana fyrr en seint og síðar meir. Í augnablikinu er ekkert annað en linkur yfir á blog síðuna en það er búinn að vera hörku hausverkur að búa […]

Halló heimur

August 20th, 2005

Velkomin á nýju bloggsíðuna mína. Ég fékk loksins nóg af blog.central.is og ákvað að það væri komin tími til að fjárfesta í leni og gera þetta bara almennilega. Ég keypti mér því slóðina http://www.halldoraj.com/ (ekkert rosalega frumlegt ég veit). Að ráði Harðar (get loksins sett inn link) þá ákvað ég að setja upp blogg kerfi […]